Ég lendi á Íslandi í kvöld, föstudaginn 12.okt, og verð fram á mánudagsmorgun 22. okt. Hvet fólk til að vera í bandi, ef ég næ ekki að vera fyrri til í að láta heyra í mér.
Fyrst Sigrúnu mistókst að gera hlekk á myndirnar okkar ætla ég að reyna að bæta um betur: Myndaalbúm Sjáum hvort það virki. Annars var ég að komast af því að bera bjórkassa er ágætis styrktaræfing, sérstaklega ef það er 50% afsláttur af þeim, 30 flöskubjórar á 78 DKK (reyndar plús pant, en það skilar sér til baka). Ágætis gulrót til að plata mann að rogast með líkast til 15 - 20 KG í korter.