Wednesday, May 07, 2008

Fór í biffen

Og sá Iron Man. Verð að segja að mér fannst hún nokkuð skemmtileg og held ég að það megi skrifast að mestu leyti á hann Robert Downey Jr. Honum tekst að gera skemmtilega ofurhetju sem er á sama tíma svöl en samt pínu misheppnuð. Jeff "the dude" Bridges kemur líka á óvart sem ótrúlega vondur vondikall.
Þeir sem eru jafnmikil njerðir og ég og geta spottað Tom Morello í myndinni fá öl.

3 Comments:

Blogger Einar said...

Hey, ég missti af Morello. Í hvaða senu var hann?

1:25 PM  
Blogger Þórir Hrafn said...

Hann er einn af gaurunum sem er kraminn þegar hann brýst út úr hellinum í fyrstu útgáfunni af brynjunni sinni.

3:06 AM  
Blogger Einar Steinn said...

Nú verð ég að tékka aftur á myndinni. :)

9:59 AM  

Post a Comment

<< Home