Sunday, June 18, 2006

Maynard ávallt hress

Já, hann Maynard kallinn er alltaf hress á kantinum. Skemmtilega klippu af honum í Bikini Bandits má sjá hér

Friday, June 16, 2006

Wyrd bið ful aræd

Finnst ykkur stundum að sama hvað þið gerið þá séuð þið enn föst á sama stað ? Föst á punkti A og komist ekki á B ! Mér finnst það soldið furðuleg tilfinning sem á það til að ásækja mann. Ekki er ég gamall, rúmlega 24 ára, en samt finnst mér oft eins og ég sé orðinn soldið gamall og ætti að vera búinn að afreka miklu meira. Nú er ég að fara að brautskrást loksins úr HÍ þann 24 júní, eftir óþarflega mikið streð og vesen, og að fara að flytja að heiman til Köben í master. Samt finnst mér einhvern veginn eins og ekkert sé að breytast af neinu viti. Margir af mínum vinum að fara að klára master, kominr í stjórnunarstöðu í vinnunni sinni og sáttir þar. Mér hefur aldrei hlotnast það að fá starf tengt mínu námi og hef því ekki minnstu hugmynd um hvort mér muni líka við þær vinnur sem munu vera í boði þegar þetta nám er loksins allt búið. Vinir í kringum mann að giftast og eignast börn hægri og vinstri og maður sjálfur eilífðar síngúll. Maður ætti að vera búinn að afrekar töluvert meira á þessum 24 árum, en samt kannski ekki. Örlögin eru skrítinn hlutur. Kannski finnur maður aldrei fyrir þessum breytinugm í lífi manns þó þær séu að gerast, en kannski gerir maður það. Kannski ætti ég bara að hætta þessu heilaroki áður en ég slasa mig af ofreynslu. Ekki gott að reyna að vera of djúpur :)

Tuesday, June 06, 2006

06.06.06

Gleðilegan Slayer dag !
Í dag er 06.06.06 og af því tilefni halda metalhausar hvaðanæva af upp á alþjóðalegan Slayer dag til heiðurs thrash metal goðunum í Slayer ! Vil ég hvetja alla til að sýna tilskylda virðingu og blasta a.m.k. eitt lag með Slayer, án þess þó að nota heyrnatól, allir eiga að fá að njóta hinna fögru tóna !





Fyrir þá sem ekki vita þá er Slayer eitt af hinum fjóru stóru þungarokksböndum úr 80's thrash metal senunni í USA, en hinir eru Metallica, Megadeth og Anthrax. Bandið skipa þeir Tom Arya á bassa og söng, Kerry King og Jeff Hanneman á gítar og mannlega vélin Dave Lombardo sér um að puða bakvið trommusettið. Drengirnir eru búnir að vera að síðan byrjun níunda áratugarins og er gulltímabil þeirra yfirleitt miðað við plöturnar Reign In Blood, South of Heaven og Seasons In the Abyss, sem komu út á árunum 1986 - 1990. Þar þykir mér skemmtilegust Seasons In the Abyss, þó allar þrjár plöturnar séu skyldeign allra sem hafa gaman af að þeyta smá flösu öðru hvoru. Kallarnir eru þó engan veginn dauðir úr öllum æðum, nýju plöturnar fínar, og efa ég að þeir muni nokkurn tíman hægja á tónlist sinni.
Fyrir þá sem hafa enn ekki kynnt sér Slayer mun ég hér hafa slagarann Raining Blood, af plötunni Reign In Blood, svo þið getið komið ykkur inn geðveikina !

Raining Blood