Tuesday, June 28, 2005

Friðurinn selur .... en hver vill kaupa ???

Í gær fór ég á hörku þungarokkstónleika. Á klakann var mættur Dave Mustaine og félagar í Megadeth, en sú fornfræga sveit er án efa með betri þungarokkssveitum sem uppi hafa verið. Fyrir þá sem ekki vita hóf Dave ferill sinn í ekki ómerkilegri sveit en Metallica, en þar spilaði hann á sóló gítar og átti með þeim stóran þátt í að skapa upphafið af "thrash/speed" þungarokkssenunni í Bandaríkjunum. En eftir tvö ár í bandinu ákváðu þeir James og Lars að reka Dave þar sem þeir voru orðnir þreyttir á drykkju -og dópveseninu í honum og vildu sjálfir ráða öllu í bandinu, eitthvað sem ekki var hægt með Dave innanborðs. Öskuillur Dave tók sig þá til við að stofna nýtt band sem myndi spila betra þungarokk en Metallica, meiri hraði, meiri tækni, flottari sóló og meiri melódíur. Og þetta tókst honum, þótt Metallica sé vinsælli og hafi á sínum ferli gert frábærar plötur þá eru Megadeth bara betri, hæfileikaríkari hljóðfæraleikarar og fyrir hverja Metallica plötu er hægt að finna plötu með Megadeth sem er jafngóð, ef ekki betri ! Eins og með Metallica eru gullaldarár Megadeth níundi áratugurinn og gáfu þeir þá út þó nokkrar stórgóðar plötur. En eftir hina frábæru Countdown To Extinction frá 1992 fóru hluturnir að fara niður á við, alveg eins og hjá Metallica. En ólíkt Metallica tókst Megadeth að komast aftur á réttan kjöl í fyrra með hinni stórgóðu plötu System has Failed, en Metallica gáfu út hina ömurlegu St. Anger (vond plata).
Til að fylgja henni eftir var haldið í túr, sem átti að vera lokatúr Megadeth og seinustu tónleikarnir hér á Íslandi. En þar sem plötunni hefur verið það vel tekið og áhugi Megadeth aldrei verið meiri í áratug hefur Dave hætt við þau áform að leggja Megadeth á hilluna, þó það hefði verið ansi töff ef sveitinn hefði endað ferilinn hér ! Fyrstir á svið voru Drýsill með engan annan en Eirík Haukson, þungarokksafa Íslands í fararbroddi. Eiríkur hélt uppi góðu stuði og tókst eins og honum er einum lagið að vera á sama tíma rosalega töff og rosalega hallærislegur, en við hverju öðru má búast við frá manni sem bæði hefur verið líkt við Bruce Dickinson (söngvari Iron Maiden) í sönggæðum, en hefur líka tekið þátt í júróvisíon, tvisvar !!
Svo stigu á svið Megadeth og hátt í þúsund dyggir aðdáendur létu í ljós ánægju sína. Dave virtist pínu fúll í byrjun, sagðist vera meira fyrir að spila en tala og myndi bara koma til með spila stanslaust í tvo tíma. En eftir nokkur lög var komin rífandi stemning, allir kunnu öll lögin sem voru spiluð og salurinn söng með af fullum hálsi, þeytti flösu, "surfaði" yfir skarann og almennt skemmti sér. Dave fór að taka ánægju sína og tónleikarnir urðu bara enn betri, hann spjallaði við skarann þó nokkrum sinnum milli laga, og lofaði að koma aftur. Dave er sniðugur og í stað þess að láta klappa bandið upp spilaði hann bara fleiri lög og tilkynnti svo eins og vanalega Holy Wars sem lokalag. Þá ætlaði allt um koll að keyra og Nasa breyttist í einn stóran mosh pit og öll sú orka sem eftir var í líkamanum var brúkuð í að hoppa, skoppa, syngja og þeyta flösu. Eftir tvo tíma af Megadeth kom maður svo út í þægilega svalt loftið sáttur og glaður, þakinn svita og hárum. Eini bömmerinn var að bolirnir sem voru til sölu á tónleikunum voru ekkert flottir, en ég redda því eflaust seinna. Finn mér flottan bol sem kemur til með að minna mig á það frábæra kvöld þegar ég sá Megadeth. Og þegar barnabörnin spyrja mig eftir nokkra áratugi, "afi, hvar varst þú þegar Megadeth komu til Íslands" þá get stoltur sagt: "lömbin mín, ég var þar .... ég var þar (sniff)"

2 Comments:

Anonymous Anonymous said...

Mustein? Druce Dickinson? (Mustaine btw)
Gúd sjitt tónleikar!

3:33 PM  
Anonymous Anonymous said...

Crapp, fann á mér að ég væri að skrifa Mustaine vitlaust :p

3:42 PM  

Post a Comment

<< Home